Dæmi
Verk sem ég hef unnið fyrir íslensk fyrirtæki. Ég birti ekki tölur eða nöfn fyrr en viðskiptavinurinn hefur samþykkt það — þangað til stendur verkið eitt.
Smásölufyrirtæki með Uniconta
Rekstrartölurnar lágu í bókhaldskerfinu en voru dregnar saman í höndunum og voru því alltaf nokkurra vikna gamlar þegar þær komust á fund.
Ég tengdi mælaborð beint við Uniconta svo stjórnendur sjái stöðuna eins og hún er í dag, án þess að nokkur opni Excel.
Markþjálfunar- og ráðgjafarfyrirtæki með sérsmíðað CRM
Viðskiptavinir og samskipti voru á víð og dreif í pósthólfum og skjölum, og engin ein mynd til af því hvar hvert mál stóð.
Ég smíðaði CRM-kerfi sniðið að þeirra ferli og rek það í áskrift með viðbótum eftir því sem þarfirnar breytast.
Líkamsræktarstöð á Íslandi
Meðlimir hættu án þess að nokkur tæki eftir því fyrr en greiðslan skilaði sér ekki, og þá var samtalið oftast of seint.
Ég keyrði tilraun með churn-greiningu sem finnur meðlimi sem eru að detta út og setur af stað endurheimt áður en þeir segja upp.
Nöfn og tölur bætast við eftir því sem leyfi fást. Ég kýs frekar tómt bil en tölu sem ég get ekki staðið við.
Fáðu fría greiningu á rekstrinum þínum
Þú svarar nokkrum spurningum, ég skoða reksturinn og bendi á þrjú verk sem borgar sig að byrja á.
Fá fría greiningu