Persónuvernd
Uppfært 2. nóvember 2026.
Hverju ég safna
Þegar þú sendir beiðni um greiningu fæ ég nafn, netfang, fyrirtæki og það sem þú skrifar sjálf eða sjálfur í formið. Ég nota þessar upplýsingar til að svara þér og vinna greininguna, ekkert annað.
Vafrakökur og mælingar
Síðan notar vafrakökur frá tveimur þjónustum til að mæla umferð. Þær hlaðast þegar síðan opnast, áður en þú velur nokkuð, nema þú hafir hafnað þeim áður.
- Google Analytics 4 (Google): hvaða síður eru lesnar, hvaðan þú komst (til dæmis úr auglýsingu) og hvaða spurningum er svarað í gagnvirkum greinum og á /greining. Ég nota það til að sjá hvaða efni gagnast og hvort auglýsingar skila gestum. Kökurnar heita
_gaog_ga_með auðkenni. - Meta Pixel (Meta, sem rekur Facebook og Instagram): skráir heimsókn þegar síða hleðst og að beiðni hafi verið send. Ég nota það til að mæla árangur auglýsinga sem ég keyri á Facebook og Instagram og til að sýna auglýsingar þeim sem hafa heimsótt síðuna. Kakan heitir
_fbp(og_fbcef þú komst úr auglýsingu).
Google og Meta vinna gögnin á sínum þjónum, líka utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég sé aðeins samantektir, ekki hver þú ert.
Hvernig þú hafnar
Neðst á skjánum birtist borði sem segir frá mælingunni, með hnöppunumÍ lagi og Hafna. Þú getur hafnað hvenær sem er: neðst á hverri síðu er hlekkurinn Vafrakökur sem opnar borðann aftur. Hafnir þú, eyði ég kökunum hér að ofan úr vafranum þínum, síðan er endurhlaðin og hvorugt scriptið er sótt aftur hjá þér. Valið er geymt í vafranum þínum (localStorage) svo borðinn birtist ekki í hvert sinn.
Svörin þín í gagnvirkum greinum eru líka geymd í vafranum þínum (localStorage) svo greinin muni hvar þú varst. Það er ekki mæling og fer ekki til mín fyrr en þú sendir formið.
Hversu lengi
Ég geymi beiðnir á meðan samskiptin eru virk og í mesta lagi í þrjú ár eftir það. Þú getur hvenær sem er beðið mig um að eyða þeim.
Hverjir sjá gögnin
Ég einn. Formið er keyrt í gegnum Netlify Forms og beiðnin er unnin með sjálfvirkniþjónustunni n8n, sem skráir hana í Google Workspace hjá mér (Sheets, Drive og Gmail). Þú færð staðfestingarpóst frá mér þegar beiðnin er komin. Ég sel ekki og deili ekki upplýsingum með þriðja aðila í markaðsskyni.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá afrit af þeim upplýsingum sem ég hef um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim. Sendu línu á ingi@lioratech.is og ég afgreiði það. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar.