Um mig

Ég heiti Ingi Þór Gunnarsson. Ég stofnaði auglýsingastofuna KIWI og sá um stafræna þróun og rekstur í tólf ár áður en ég sneri mér alfarið að gervigreind.

Ingi Þór Gunnarsson með fjölskyldu

Sagan

Í tólf ár sá ég um stafræna þróun og rekstur hjá auglýsingastofunni KIWI. Á þeim tíma vann ég með yfir 300 íslenskum fyrirtækjum í fimmtán atvinnugreinum — allt frá tveggja manna verkstæðum upp í fyrirtæki með hundruð starfsmanna.

Það sem sat eftir var ekki markaðsefnið. Það var hvað ótrúlega mikill tími fór í verk sem enginn hafði valið sér: afrita milli kerfa, skrifa sama svarið í tíunda sinn, draga saman skýrslu sem var orðin úrelt þegar hún var tilbúin. Þegar gervigreind varð nógu góð til að taka við þeim verkum stofnaði ég LioraTech.

Hvernig ég vinn

Ég byrja á einu verki, ekki stefnumótun. Ég mæli hvað það kostar í tíma í dag, smíða lausnina og tengi hana við kerfin sem þú átt nú þegar — bókhaldið, CRM-ið, póstinn. Þú færð verðið áður en nokkuð er byrjað.

Ég segi upphátt þegar ég veit ekki. Ef verk er óvíst segi ég það frekar en að lofa tölu sem ég get ekki staðið við.

Hvað ég geri ekki

  • Ég sel ekki námskeið eða fyrirlestra um gervigreind.
  • Ég tek ekki að mér verk sem ég tel að skili þér engu — ég segi það þá strax.
  • Ég vinn ekki í opnum tímareikningi án þaks.

Fáðu fría greiningu á rekstrinum þínum

Þú svarar nokkrum spurningum, ég skoða reksturinn og bendi á þrjú verk sem borgar sig að byrja á.

Fá fría greiningu