AI mælaborð les beint úr bókhaldskerfinu og sýnir veltu, framlegð og lagerstöðu á hverjum morgni. Gervigreindin skrifar stutta samantekt á íslensku um hvað breyttist og hvað ætti að gera. Tölurnar voru til allan tímann. Þær bárust bara of seint.
Í flestum fyrirtækjum sem ég kem inn í er bókhaldið í lagi. Hver sala er skráð og hver reikningur bókaður. Samt eru pantanir teknar á tilfinningu, því heildarmyndin kemur ekki fyrr en í mánaðaruppgjöri eða ársreikningi. Þá er of seint að bregðast við.
Vandinn er sjaldnast gögnin. Tölurnar búa hjá bókaranum en ekki hjá þeim sem ákveður, og flokkun kerfisins er of flöt til að sjá hvaða vöruflokkur skilar framlegð og hver bindur bara fé.
Ég smíðaði rekstrarmælaborð með gervigreind til að leysa þetta: stjórntæki fyrir eigendur og stjórnendur. Efst stendur ein setning um hvað gerðist á tímabilinu og tillaga beint undir. Svo fjórar tölur — velta, framlegð í krónum, framlegð í prósentum og fé bundið í lager — hver borin saman við sama tímabil í fyrra, með einni setningu um hvað hún þýðir.
Þessi grein spyr þig tveggja spurninga og lagar sig að svörunum. Viltu lesa allt í röð er hlekkur neðst.

Svona byrjar dagurinn í símanum. Úr sýnidæmi: uppdiktað fyrirtæki og tilbúin gögn, ekkert úr rekstri raunverulegs fyrirtækis.
Hvaða bókhaldskerfi keyrir reksturinn þinn á?
Svarið ræður hvað uppsetningin tekur langan tíma.
Fyrir þá sem nota Uniconta
Uniconta er tilbúna leiðin
Tengingin við Uniconta er þegar smíðuð, svo þar byrjar ekkert á núlli. Mælaborðið er komið upp innan tveggja vikna frá undirskrift.
Það sem ég þarf frá þér er þrennt. Lesaðgang að kerfinu — aldrei skrifaðgang, mælaborðið breytir engu í bókhaldinu. Nokkrar tölur sem þú treystir, til dæmis veltu síðasta mánaðar, svo ég geti sannreynt að mælaborðið sýni það sama og bókhaldið. Og 45 mínútur í afhendingarfund.
Eftir það er mælaborðið sniðið að þínum rekstri í nokkrum umferðum: hvaða vöruflokkar skipta máli, hvaða viðvaranir þú vilt fá og hverjar ekki.
Fyrir þá sem nota DK
Með DK byrjar verkið á gagnaskoðun
DK er ekki tilbúin leið hjá mér enn, svo ég lofa engu fyrr en ég hef séð gögnin. Fyrsta skrefið er gagnaskoðun: ég fæ lesaðgang, athuga hvort sala, kostnaðarverð og birgðir liggi þannig að hægt sé að reikna framlegð eftir vöruflokki, og ber niðurstöðuna saman við tölur sem þú treystir.
Í kerfum sem hafa verið lengi í notkun hefur flokkunin oft vaxið villt: vörur í röngum flokki og flokkar sem enginn notar lengur. Það stoppar ekki verkið, en það er betra að vita af því í fyrstu vikunni en þeirri fjórðu.
Fyrir þá sem nota Business Central
Business Central: tólið er sjaldnast það sem vantar
Fyrirtæki á Business Central eru oftast í Microsoft-umhverfi og mörg eiga þegar aðgang að skýrslutóli. Samt er sagan algeng: skýrslurnar eru til en enginn opnar þær.
Ástæðan er að skýrsla svarar ekki spurningu. Hún sýnir tölur og lætur eigandann um að finna hvað breyttist. Það sem ég set upp byrjar á hinum endanum: ein setning um hvað gerðist, af hverju, hvað það þýðir í krónum og hvað ætti að gera. Tölurnar koma á eftir, fyrir þann sem vill kafa.
Business Central fer í gagnaskoðun fyrst, eins og öll kerfi önnur en Uniconta, og uppsetningin tekur þrjár til fimm vikur eftir hana.
Fyrir önnur kerfi
Önnur kerfi: fyrst þarf að vita hvað er skráð
Regla, Payday og minni kerfi eru gerð til að gefa út reikninga og skila bókhaldi, og gera það vel. Spurningin fyrir mælaborð er önnur: er kostnaðarverð skráð á vöruna, og er salan skráð niður á vöru en ekki bara sem upphæð?
Sé svarið já er leiðin sú sama og annars staðar: gagnaskoðun, svo þrjár til fimm vikur. Sé svarið nei er framlegð eftir vöruflokki ekki til í gögnunum og ekkert mælaborð býr hana til. Þá segi ég það frekar en að selja þér eitthvað sem sýnir bara veltu.
Oft er lausnin þá lítil: að byrja að skrá kostnaðarverð, eða sækja söluna þangað sem hún er skráð niður á vöru, til dæmis í vefverslunina.
Óháð bókhaldskerfi
Kerfið ræður tímanum, ekki hvort það er hægt
Mælaborðið les úr kerfunum sem reksturinn keyrir þegar á. Uniconta er tilbúna leiðin og tekur innan við tvær vikur frá undirskrift. Önnur kerfi — DK, Business Central, Regla, Payday — byrja á gagnaskoðun og taka þrjár til fimm vikur eftir hana. Í öllum tilvikum fæ ég aðeins lesaðgang, aldrei skrifaðgang.
Hve gömul er talan þegar þú sérð hana?
Hvernig verða rekstrarskýrslur til hjá þér í dag?
Skýrslur settar saman í Excel
Þegar einn maður og eitt Excel-skjal halda á heildarmyndinni
Þetta er algengasta staðan sem ég sé. Einhver — oft eigandinn sjálfur, stundum bókarinn — dregur tölur út úr kerfinu, límir þær í skjal og lagar formúlurnar sem brotnuðu síðast. Skjalið er gott. Það er bara alltaf gamalt, og það verður ekki til þegar viðkomandi er í fríi.
Mælaborðið tekur handavinnuna: sömu tölur, sóttar sjálfkrafa, á hverjum morgni. Við bætist það sem skjalið gat aldrei: hægt er að rekja sig úr vöruflokki niður í vöru og afbrigði, og viðvörun kemur þegar vara er að klárast miðað við söluhraða og afhendingartíma birgis.
Sá sem setti skjalið saman fær tímann til baka. Það er sjaldnast stærsti ávinningurinn, en hann sést fyrst.
Skýrslur beint úr bókhaldskerfinu
Þegar skýrslurnar eru til en segja ekki nóg
Bókhaldskerfið skilar rekstrarreikningi og sölulistum, og þeir eru réttir. En flokkun kerfisins er gerð fyrir bókhald, ekki ákvarðanir. Hún er of flöt til að sjá framlegð eftir vöruflokki, og hún ber ekki saman búð og vef, eða þetta tímabil og sama tímabil í fyrra, nema einhver geri það í höndunum.
Mælaborðið raðar sömu gögnum upp á nýtt án þess að breyta neinu í kerfinu. Þú sérð framlegð í krónum og prósentum eftir flokki, söluhæstu vörur, og tvo lista sem venjuleg skýrsla gefur þér ekki: „Að klárast” og „Bindur fé”.
Engar reglulegar skýrslur
Þegar uppgjörið er eina skýrslan
Þá ertu að reka fyrirtækið á bankareikningnum og tilfinningunni. Það gengur lengur en margir halda, sérstaklega ef þú stendur sjálfur á gólfinu og sérð hvað selst. Það hættir að ganga þegar vöruúrvalið vex, vefverslun bætist við eða þú ert ekki lengur á staðnum alla daga.
Fyrir þig er mælaborðið sjálft ekki aðalatriðið til að byrja með. Það er vikulega samantektin. Hún kemur í tölvupósti, er skrifuð á íslensku og segir þér það sem þú hefðir annars séð í uppgjörinu mörgum vikum seinna. Mælaborðið er til staðar þegar setningin vekur spurningu.
Óháð því hvernig skýrslur verða til
Hvernig sem tölurnar verða til í dag
Mynstrið er það sama: tölurnar eru réttar en berast þeim sem ákveður of seint og í röngu formi. Mælaborðið breytir tímanum. Samantektin breytir forminu.
Hvað svo?
Ef ég ætti að draga þetta saman í eina reglu: tala sem berst eftir að ákvörðunin var tekin er saga, ekki stjórntæki.
Skoðaðu sýnidæmið áður en þú gerir nokkuð annað. Það er uppdiktuð húsgagna- og heimilisvöruverslun með tilbúin gögn, og 60 sekúndna leiðsögn gengur sjálf í gegnum það. Mánudagspósturinn er þar líka.

Úr sama sýnidæmi: dagar til þurrðar eru reiknaðir úr söluhraða og bornir saman við afhendingartíma birgis.
Nokkur atriði sem ég segi upphátt áður en þú spyrð. Gögnin eru þín. Kóðinn er afhentur ef leiðir skilja. Rekstrargjaldið er þekkt fyrirfram og engin óvænt gjöld bætast við. Gervigreindin spáir ekki fram í tímann; hún segir hvað gerðist og hvað það þýðir. Spjall við gögnin er í þróun, og sýnidæmið sýnir aðeins forsýn af því, merkta sem slíka.
Viltu vita hvað það tæki að tengja þetta við þitt kerfi er fría greiningin rétti staðurinn til að byrja. Sé mælaborð ekki verkið sem skilar þér mestu segi ég það líka — stundum er það pósthólfið eða tilboðin.
